• Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, 850 Hella

Málefni Landsmenntar til umræðu

Stjórn og starfsmenn starfsmenntasjóðsins Landsmenntar komu saman á stefnumótunarfundi í Reykjavík. Markmið fundarins var að fara yfir starfsemi sjóðsins frá stofnun hans árið 2000 til dagsins í dag og rýna jafnframt í framtíðina í ljósi vaxandi áhrifa gervigreindar á íslenskan vinnumarkað.

Stjórn og starfsfólk Landsmenntar

Stjórn sjóðsins er skipuð sex stjórnarmönnum, þremur frá Samtökum atvinnulífsins og þremur frá Starfsgreinasambandi Íslands. Hjá sjóðnum starfa tveir starfsmenn.

Stjórnarformaður Landsmenntar er Aðalsteinn Árni Baldursson. Hann hefur setið í stjórn sjóðsins frá upphafi, ásamt Hjördísi Þóru, formanni AFLs Starfsgreinafélags. Varaformaður sjóðsins er Maj-Britt Hjördís Briem, lögfræðingur og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.

Um 358 milljónir króna í styrki árið 2025

Landsmennt gegnir mikilvægu hlutverki á íslenskum vinnumarkaði með einstaklingsstyrkjum til verkafólks og styrkjum til fyrirtækja innan Samtaka atvinnulífsins.

Árið 2025 voru samþykktir 3.098 einstaklingsstyrkir til félagsmanna aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands. Framsýn er eitt aðildarfélaga sambandsins.

Flestir einstaklingsstyrkjanna voru á bilinu 50.000–129.000 krónur. Hámarksstyrkur til félagsmanns á ári er 180.000 krónur. Heildarfjárhæð einstaklingsstyrkja árið 2025 nam 257,6 milljónum króna.

Á sama ári voru samþykktar 526 umsóknir um fyrirtækjastyrki. Heildarfjárhæð samþykktra fyrirtækjastyrkja nam 100,5 milljónum króna.

Í heild greiddi sjóðurinn um 358 milljónir króna í styrki á árinu 2025 til einstaklinga og fyrirtækja sem eiga aðild að sjóðnum.

Framlög atvinnurekenda standa undir starfseminni

Sjóðurinn er fjármagnaður með framlögum atvinnurekenda, sem greiða 0,30% af launum starfsmanna til hans. Árið 2025 námu framlög fyrirtækja í sjóðinn um 442 milljónum króna.

Deildu:

Fylgdu okkur

Þú getur fundið okkur á Facebook og Instagram
Skrifstofa
  • Suðurlandsvegi 1-3, 3 hæð, Hella
  • Mán - Fim 9-16 Fös 9-15
Hafðu samband
  • 487-5000
  • vs@vlfs.is
Fylgdu okkur
© 2024 Verkalýðsfélag Suðurlands. Allur réttur áskilinn.