
Verkalýðsfélag Suðurlands sendi sveitarfélögum á félagssvæði sínu áskorun um að taka þátt í sameiginlegu átaki um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár þeirra og fyrirtækja í þeirra eigu hækki ekki um meira en 2,5% á árinu 2027.
Nú hafa sveitastjórnir Mýrdalshrepps og Ásahrepps hafa nú tekið erindi félagsins til afgreiðslu.
Í svari Mýrdalshrepp kemur fram sveitarfélagið muni fylgja eftir ályktun landsþings Sambands Íslenskra sveitarfélaga um hóflegar gjaldskrárhækkanir og stuðst verði við 2,5% verðbólgumarkið Seðlabanka Íslands. Það verður viðmið sveitarfélagsins við komandi gjaldskrárákvarðanir.
Í svari Ásahrepps kemur fram að hreppsnefnd Ásahrepps var eftirfarandi bókað samhliða umræðu um forsendur fjárhagsgerðar 2027. “Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hækkanir á gjaldskrám fari ekki umfram 2,5%”
Verkalýðsfélag Suðurlands fagnar þessum skýru og jákvæðu viðbrögðum.
