Ertu verktaki eða starfsmaður?

Það er mikill munur á því að vera launamaður eða verktaki og mikilvægt að fólk átti sig á í hverju munurinn felst. Sem launamaður ertu með ráðningasamning og safnar réttindum á vinnumarkaði, atvinnurekandinn sér um að greiða af þér skatta og þess háttar og þú ert varinn af lögum sem launamaður. Ef þú ert verktaki ertu í raun að selja þjónustu og þú átt í viðskiptum án þess að njóta réttinda sem launamaður eða ávinna þér slíkt. Því miður er þessu stundum ruglað saman og launamönnum boðið uppá að vera verktakar.

Þú ert starfsmaður ef þú semur um að mæta á ákveðnum tíma á ákveðinn stað og ljúka vinnu á ákveðnum tíma.

Þú ert starfsmaður ef þú vinnur undir verkstjórn annarra og ert í fastri vinnu.

Þú ert verktaki ef þú gerir samning um einstaka verk sem þú ræður hver vinnur og hvernig. Samið er um greiðslu fyrir verkefnið en þú átt atvinnutækin sjálf/ur og getur ráðið aðra til að sinna verkinu. Þú ert fjárhagslega ábyrg/ur fyrir verkefninu sjálf/ur

Ef þú ert verktaki:

  • Ertu ekki varinn af kjarasamningum þegar kemur að til dæmis lágmarkslaunum
  • Hefurðu ekki uppsagnarfrest
  • Safnarðu ekki orlofi og getur því ekki tekið frí á launum
  • Færðu ekki greitt í veikindum
  • Safnarðu ekki sjálfkrafa í lífeyrissjóð
  • Ertu ekki slysatryggð/ur gegnum atvinnurekendur
  • Þarftu sjálf/ur að skila tryggingagjaldi, mótframlagi í lífeyrissjóð, slysatryggja þig o.s.frv.


Passaðu uppá réttindi þín! Gerviverktaka er ólögleg og skerðir réttindi almenns launafólks!